15.8.09

Sjóðheitar upptökur og litli dansarinn

Þá eru komnar allar upptökur úr stúdíóvinnu og hef ég sett þær inn á söngvara heimasíðuna mína (egillpalsson.com) Mér þykir hafa tekist vel til.

Fyrir þá sem nenna ekki að smella lengra er hægt að hlusta hérna líka :)





Svo er hérna létt vídeó af Júlíunni littlu að dansa og setja upp svakalega fallegan svip í leiðinni :)

12.8.09

Röddin og pasta

Mig langar rétt að benda fólki á að kíkja aðeins á heimasíðuna www.stodkennarinn.is og smella þar á Kynningarmyndband. Hlustið í svona rúma mínútu :) Það gæti komið skemmtilega á óvart.

Svo langaði mig að deila með lesendum síðunnar hvernig á að laga grunn að pasta sem hreinlega getur ekki klikkað...!
Fyrst að sjóða pasta (al dente auðvitað), ég kýs að sjóða upp úr kjötkrafti og 2-3 msk af olíu.
Svo er það einfallt, bræða c.a msk af smjörlíki eða smjör í potti, bæta við það tveimur eða fleirum fínt söxðuðum rifjum af hvítlauk og hugsanlega teskeið af fíntsöxðuðu chilli. Láta rétt malla þangað til að hvítlaukurinn er orðin mjúkur, má alls ekki brenna! Svo bara hella pastanu saman við og hræra vel þannig að smjörvökvinn nái að dreifast vel. Svo setur maður bara saman við þetta hvað sem hugurinn girnist: sólþurkaða eða ferska tómata, fersk basil osfrv. Eitt og sér er þetta bara svaka fínt og ódýrt. En ég mæli með að blanda einhverju við. Mæli með að þið prufið þetta næst þegar þið eruð að gera t.d spaghetti!

Fyrir tvo, miða ég við góða matskeið af smjöri, tvö rif og 1/3 af heilum chili pipar. Auk þess að vera gott, veldur fitan því að pastað loðir ekki saman eins og oft gerist.

Annars var það nú ekki fleira :) Góðar stundir.

10.8.09

Tíminn er núna!!!

Margt hefur verið að gerast síðustu daga, flest af því mjög gott og ánægjulegt sem betur fer. Annað í þunglyndislegri kantinum, en hvernig getur það staðist þegar allt gengur vel??

Nú fyrst ber kannski að nefna að ég hef verið í stúdíó hérna í Berlín að reyna að taka upp demó til að senda á umboðsmenn, keppnir og annað sem maður sendir demó upptökur í :) Seinni dagur upptaka var í dag og verður að segjast eins og er að ég er bara nokkuð ánægður með það sem er komið á band.....eða á maður að segja byte? Eftirvinnsla er svo planlögð á föstudag og því er fyrstu tóndæma að vænta á laugardag/sunnudag. Ég get varla beðið.

Nú svo eru það fréttirnar sem ég vildi ekki segja frá fyrr en ég hefði allt staðfest um það í höndunum, nú hef ég það semsagt. Fyrir stuttu hringdi í mig tenór félagi minn sem var með mér í Rheinsberg, og hann hafði skráð sig í eitthvað prógram sem hann gat ekki tekið þátt í, og spurði hvort ég hefði áhuga á að fara í staðinn fyrir sig, sem ég og samþykkti. Svo var hringt í mig og mér sagt að ég þyrfti að læra einhver tvö samsöngsatriði úr Brúðkaupi Fígarós og Fidelio, en ég þyrfti að senda einhver gögn og þau gætu ekki svarað mér fyrr en í dag um hvort ég mætti taka þátt. Eins var mér sagt að ég fengi ekki að taka þátt í keppnum til verðlauna fyrr en þau hefðu heyrt í mér. Svo í dag var mér sagt að ég mætti taka þátt í öllu, og það væri ekkert mál. Þetta held ég að sé vegna þess að ég sendi þeim slóðina á heimasíðuna mína, því þau hafa núna augljóslega heyrt í mér, þar sem ég fæ að vera með í öllu (egó loksins) :) Það sem er svo kannski jákvæðast við þetta er að ég fær borgað fyrir að taka þátt í þessu 3 vikna prógrammi, þar sem ég leiklistar og danstíma auk söngþjálfunar og Masterklassa.
Það er því ekkert lítið að fá að gera þetta. Það er semsagt umboðsskrifstofa sem heldur þetta og þarna verða óperustjórar allstaðar að úr þýskalandi í dómnefndum og annað slíkt, þannig að þetta verður vonandi stórt og mikið tækifæri í ofanálag. Ég er semsagt að fara í þetta eftir viku (17.Ág), og æfingar hefjast svo eigninlega í Neuköllner Oper daginn eftir að ég kem heim aftur, stress, spenna, álag, hvað er hægt að biðja um meira????????

Þunglyndið er vegna fjárhags og útlits í fjármálum heima á Íslandi, það er ekki gaman að þurfa að hrökklast heim vegna þess að peningar eru búnir, en ég á ennþá inni um 6-8 mánuði af sparnaði og svo er bara dæmið búið, þetta veldur áhyggjum og óþarfa stressi, auk þess sem sjúkratryggingar eru að renna út!!! og eitthvað fleira eflaust sem ég nenni ekki að rifja upp.

Júlíuhornið
Sú stutta hefur að mestu verið að sofa vel, en síðustu daga hefur það nú ekki alveg verið eins og best væri á kosið. Hún er svona eiginlega ljósið í myrkrinu ef svo má segja, vel samsett barn, lífsglatt og þroskað. Hún gerir allavega lífið skemmtilegra núna, þó hún geti líka reynt á það fínasta.

Hún var úti á svölum um daginn í göngugrindinni sinni, þar sem hér hefur verið um og yfir 30 stiga hita síðustu 10 dagana eða svo, svalirnar ekki alveg nógu hreinar verð ég að segja en svona er það nú bara.

8.8.09

Zum Geburtstag viel Glück!

Sungið við sívinsælt "Happy Birthday To You" eftir Patty og Mildred.J Hill, fyrir þá gömlu í Holti :)

Zum Geburtstag viel Glück
Zum Geburtstag viel Glück
Zum Geburtstag liebe Mutti
Zum Geburtstag viel Glück

Til hamingju með daginn mamma

4.8.09

Smáralindarbæklingurinn

Vorum í smá göngutúr í dag og í einni versluninni rakst ég á þetta. Tilefni í annan Smáralindarbækling ekki satt? :)

1.8.09

Gleðilegan strákúst!

Þá er kannski kominn tími á aðra færslu. Við erum sannarlega búin að jafna okkur eftir ferðina góðu og nú hefur hversdagsleikinn tekið við. Hversdagsleikinn er fínn að mörgu leiti, þá helst að því leiti að það er svo gaman að breyta til :) Við buðum í léttan ítalskan mat hérna í gær með tilheyrandi rauðvínssulli og situr undirritaður nú með léttan höfuðverk að borða currywurst og drekka bjór með til að rétta sig af fyrir daginn :)

Það sem er helst að frétta héðan frá mér er að mér hefur verið boðið þetta hlutverk, sem ég held ég hafi áður minnst á, í Neuköllner Oper. En það er lítil ópera hérna í Berlín sem er frekar virt að mér skilst, en þá að því leiti að þeir eru að gera "öðruvísi" hluti, sem er alltaf talið gott. Í þetta skiptið á að taka fyrir Rigoletto eftir Verdi og búa til eitthvað úr því! Ég verð því að vinna hérna eitthvað aðeins fram að næsta ári, en hvað þá tekur við veit nú engin, vandi er um slíkt að spá. Þetta þýðir meðal annars það að ekki verður farið heim um jól og áramót eins og var í kortunum, þar sem sýningar eru aðeins of nálægt hátíðardögum. Í staðin höfum við sett annað plan í gang, en það er að reyna að plata fólkið okkar hingað :) Sjáum hvernig það fer.

Ég er nú á fullu að undirbúa mig fyrir upptökur sem ég er að fara í 1o. og 12. ágúst. Upptökum þessum er ætlað að notast sem efni til að senda á umboðsmenn og í keppnir eftir því sem við á. Ætlunin er að taka upp að lágmarki 4 aríur og gera það vel.

Júlíuhornið
Sú stutta þroskast með ógnarhraða og er alveg dásamlegt barn að flest öllu leiti, nema það að hún mætti nú alveg sleppa því að vakna á klukkutíma fresti yfir nóttina. Komin með 3 tennur og byrjuð að "tala" alveg svakalega mikið. Hún fer mikinn í göngugrindinni sinni á hverjum degi og maður verður að hafa sig allan við að stoppa hana af þegar hún fer í leiðangra sína um íbúðina.

Vídéó frá Rheinsberg, sýning nr.2 sem er alltaf lélegust, en svona er það nú bara :)



26.7.09

Flott sumarfrí, skemmtileg ferð og langþráð hvíld

Sumarferðin í ár var farin niður til Franken héraðsins hér í þýskalandi. Við leigðum bíl og héldum af stað til Sächsische Schweiz sem er gífurlega flottur þjóðgarður hér í þýskalandi, þar skoðuðum við m.a Bastei, Festung Königstein og Hohnstein. Svo að loknum löngum degi var gist á hóteli rétt við Dresden. Þar stoppuðum við um nóttina og héldum svo af stað áleiðis til Bayreuth þar sem var stoppað og hið fræga Festspielhaus Wagners skoðað. Svo var ætlunin að grilla einhversstaðar, vorum með allt til alls en ekki gekk vel að finna stað til að grilla á. Það endaði bara með að við keyrðum inn einhvern afleggjara að einhverju sveitaþorpi, þar var stoppað og grillað í vegakanntinum, mjög skemmtilegt og eftirminnilegt. Svo var lagt af stað á næsta stopp sem var Motel Pelikan. Á leiðinni þangað keyrðum við "útsýnis leið" sem Erla var búin að finna út að gæti verið falleg, sem hún og var. Á þeirri leið römbuðum við svo inn á eitthvað rennibrautardæmi, þar sem við stoppuðum og prufuðum eina ferð, þar sem við vorum síðustu gestirnir því við vorum svo seint á ferðinni, það reyndist vera stórskemmtilegt og alls ekki hægt að sjá eftir því. Þegar á Mótelið var komið blasti við okkur furðulegt umhverfi, þar sem þarna var Burger King, Ferrari og Maserati umboð, Risastór magnvöruverslun, og 3d Bíó, en engar íbúðir neinsstaðar í augsýn. Þetta var samt svakalega flott og skemmtilegt að upplifa.

Þvínæst var haldið Ochsenfurt, sem er einn af fjölmörgu smábæjunum þarna á þessu vínræktarsvæði, þar römbuðum við inn á vínsmökkunarstað sem sökum tímaleysis varð að bíða smökkunarinnar sjálfrar :) Þaðan var svo keyrt með fram ánni Main upp til höfuðstaðs Franken, Würzburg. Það er gífurlega falleg borg, og mjög áhugvert að skoða. Þar leynist meðal annars Juliusspital sem er stór vínframleiðandi í þýskalandi, framleiða um milljón flöskur á ári. Spítalinn var upprunalega stofnaður til að vera til góðs fyrir almenning og var vínræktin notuð til að sjá fyrir rekstri staðarins.
Ég keypti mér 3 flöskur á hrikalega góðu verði og hlakka til að taka tappan úr og drekka hér á einhverjum góðviðrisdeginum. Við skelltum okkur svo í siglingu á ánni í svakalega góðu veðri og enduðum svo daginn á málsverði á Juliusspital veitingahúsinu, þar sem maður skolaði niður mat með dýrindis vínum.

Daginn eftir skildu svo leiðir okkar við Gunnar og Erlu sem héldu áleiðis í skemmtigarðaupplifun en við fórum að halda heim á leið þar sem veðrið var frekar slæmt og við vorum ekki alveg að nenna að fara í skemmtigarð þar sem kostar 26 EUR inn til þess eins að standa þar í rigningu. Í staðinn fórum við aftur til Ochsenfurt og tókum létta vínsmökkun, þar voru svo keyptar um 10 flöskur af dýrindis vínum frá héraðinu, svo var haldið til Frankfurt. Þar var stoppað í smástund og borðað ásamt því að skoða það sem hægt var á stuttum tíma, fórum þar meðal annars upp á útsýnispall á einu af háhýsunum á staðnum.
Svo ekið í rúman klukkutíma þar til við komum á næsta áningarstað en það var hótelið "Sleep&Go", þar vorum við um nóttina og lögðum svo af stað til Buchenwald vinnubúðanna að undirlagi ÞSP, en þar var hægt að skemmta sér við það að skoða þann hrylling sem þar fór fram. Svo var bara haldið heim á leið í 3 tíma bílferð sem var eins og draumur einn á E klassanum.

Nú er alveg ótrúlega gott að hvíla sig aðeins næstu daga, meira er þó í fréttum og læt ég það bíða næsta bloggs.

Nóg af myndum voru teknar í ferðinni og að sjálfsögðu eru þær birtar hérna.