19.7.09

I am afraid we have to upgrade you to the Mercedes E-Class

Jæja þá er nokkrum dögum lokið hér af heimsókn Bruderlein og hans konu. Það er búið að flækjast víða og í gær var farið í sushi og svo "pöbbarölt" þar sem okkur hafði verið lofað besta bjór í heimi og svo einhverju öðru áhugaverðu. Hvort það var best í heimi verður auðveldlega svarað með nei, en áhugvert og sniðugt, jamms. Það var svo komið við á Curry 36 á heimleið til að fá sér bæjarins bestu okkar berlínarbúa.

Í dag var svo farið að sækja bílaleigubílinn sem notast á í ferð vikunnar, þegar á staðin var komið var þvímiður ekki til bíllinn eða flokkurinn sem við ætluðum okkur að fá bíl úr, en í staðinn fengum við í uppfærslu í Mercedes E, sem er enging smá smíð, grunnverð á honum er að mér skilst um 10 millur, það er því ekki slæmt að fara á þessari drossíu í sumarfríið.

Planið er semsagt að fara niður til Dresden og þaðan í Sächsische Schweiz, svo til Bayreuth og loks Sommerhausen í Franken, þar er svo planið að vera í 2 daga og jafnvel taka vínsmökkun, einnig er planið að kíkja í "Holiday Park" ef okkur langar að vera lengur á svæðinu er möguleiki á því. Í bakaleiðinni þarf svo að koma við í fyrrverandi fangabúðum Nasista, Buchenwald. Meira hefur nú ekki verið planað og það er bara ótrúlega fínt.

Næsta sunnudag verður svo ferðasaga og fullt fullt af myndum. Þangað til næst gangið á guðs vegum og passið ykkur að detta ekki.

13.7.09

Ævintýri nótt sem nýtan dag.

Það ber kannski fyrst að fagna því að veðrið hérna er að skána, loksins! En annars er það helst að frétta að við skelltum okkur í fyrsta skipti í dýragarðin hérna í Berlín í gær, og það má nú alveg segja eins og er að þetta er mikið flottari garður en ég hafði gert mér í hugarlund. Við náðum reyndar ekki að skoða sjávardýrasafnið þar sem það var búið að loka því þegar við vorum búin að röllta garðinn. Kannski næst!

Á heimleið var komið við á gulastaðnum og fólk tróð í sig í mat og drykk......verðmiðinn....jahh litlar 24 Evrur! Þetta er bara skandall! :) En þegar heim var komið átti sér stað annað skemmtilegt, en þegar við vorum að setjast niður við sjónvarpsgláp, heyrðum við mikil læti fyrir utan, og þegar betur var að gáð var kominn bíll á hvolf úti í garði fyrir utan hverfispöbbinn. Það er eiginlega með ólíkindum að það fór eins vel og raun bar vitni, það var einn í bílnum og hann stóð bara upp beint frá þessu og labbað um allt öskrandi og bölvandi, yfir þessari bévítans óheppni :) Þarna voru bílar allt í kring sem sluppu, einn ljósastaur laskaðist lítillega og einhverjir runnar eru ónýtir. Það má nú teljast gott miðað við hvernig á horfðist.
Júlía er ennþá skítkvefuð og það veldur henni smávægilegum óþægindum og pirringi, en hún sá sér engu að síður fært að vera á ferðinni í rúma 6 tíma án þess að væla svomikið sem einusinni. Þetta er ótrúlega dugleg lítil mannvera. Hún á reyndar töluvert erfitt með svefn og er alltaf að vakna og grenja mjög sárt. Það sem er fyndið við þessi veikindi hennar er að hún er búin að finna nýja rödd sem hún notar mikið, en það er kvefröddin, sem er svona í dýpri kantinum fyrir svona lítið kríli :)

Annars eru komnar fullt af nýjum myndum í albúmin:




9.7.09

Himnaríki og helvíti

Manni verður oft hugsað til þeirra hugmynda sem himaríki og helvíti eru, og það er erfitt að skilgreina það öðruvísi en samkvæmt þeim upplifunum sem maður hefur orðið fyrir í lífinu.
Að fá konu og dóttur aftur heim er sannarlega nálægt nær himnaríki en að þurfa að vakna ítrekað á nóttunni er en ansi nálægt hinum pólnum. Það er ekki að ástæðulausu sem svefnleysi er notað sem vinsæl pyndingar aðferð. Líklega er þó sú litla að fá tennur, eða það sýnist okkur allavega og það gæti skýrt ýmislegt í því sem nú er að gerast. Spurningunni "langar mig í annað barn?" verður því svarað sem fyrr: "líkurnar eru 0%".

Í gær var farið í Toys-r-us og keypt göngugrind á sérstöku tilboðsverði :) Sú litla vandist á það á Íslandi að geta ferðast um, og því var það úr að við lögðum út í þessa fjárfestingu.

Hér er annars bara leiðindaveður og Guðný systir fær ekki alveg hið góða verslunarveður sem hefði verið gott að fá, og spáin er leiðinleg næstu daga. En það hefur oftar en ekki breyst.

Nóg í bili,
Ég lýk þessu hér með hamingjuóskum til norska parsins sem tók um það meðvitaða ákvörðun að flækja líf sitt og þar með eyðileggja öll framtíðaráform :)

6.7.09

Meira frægt fólk og kannski einhver tækifæri

Þá er ég loksins komin heim eftir 17 daga ferðalag. Ferðin hófst á lestarferð til Braunschweig, þar sem æft var nokkuð stíft fyrir Das Liebesverbot. Að lokinni viku þar var haldið til Rheinsberg þar sem var fumsýnt. Einn dagur í hvíld var svo áður en æfingar hófust fyrir Galatónleika. Ég er nokkuð ánægður með mína framistöðu á Galatónleikunum og sérstaklega þó á síðasta laugardag, en þá voru tónleikarnir haldnir innandyra þar sem miklar líkur voru á rigningu(hún kom þó aldrei). Á þá tónleika kom innanríkisráðherra þýskalands, Wolfgang Schäuble, með tilheyrandi öryggisgæslu, sem var gaman. Síðustu tónleikarnari voru svo í gær á gullfallegum stað rétt utan við Berlín, sem heitir Kloster Chorin, þetta er gamalt klaustur sem er núna vinsæll ferðamannastaður. Þarna er mjög fallegt og það var sérstaklega gaman að syngja þarna þar sem við fengum rúmlega 1200 manns.
Kloster Chorin (tekið á fína símann minn)
Þegar til Berlínar var komið skelltum við okkur á seinni hluta Carmen á Gendarmenmarkt, sem var nú hálf ömurlegt, og eiginlega hálf misheppnað, en samt svona er þetta bara, við vorum svo boðin í VIP partý á eftir sem var nú ekki merkilegt nema fyrir þær sakir að ég smakkaði nokkrar ágætis mjög dýrar víntegundir :)

Kannski tækifæri kom svo í morgun, þar sem stjórnandi lítils óperuhúss hér í Berlín hafði verið á laugardags Gala tónleikunum og leist vel á það sem hann sá og vildi bjóða mér hlutverk, en hann bað mig að koma og syngja fyrir leikstjóra og stjórnanda á morgun kl 15, ég mun að sjálfsögðu gera það. Þetta er lítið hús sem gerir bara lítil verkefni yfirleitt ekki stórar sviðsetningar og því er ekki um neina fastráðningu að ræða, sem er svosem ekkert slæmt. Þetta er ekki neitt sérstaklega vel borgað en vinna er vinna þessa dagana.

Ég er annars bara í rólegheitum að þvo þvott og ganga frá uppúr töskum. Svo ætla ég að skella mér í Sushi og svo bara slökun fyrir morgundaginn, en þá kemur mín ástkæra systir, svo fer ég í áheyrnarprufu og svo kemur ástkær lítil fjölskylda. Stór dagur á morgun.

Í hallargarði Rheinsberg kastalans, í bakgrunni má sjá tóneikasvæðið

4.7.09

Áður en þetta hverfur :)

Ykkar einlægur birtist á netinu í dag, og þarna má sjá meðal annars hvar við komum fram og annað slíkt.

Ekki sést né heyrist mikið af mér en alveg nóg til að maður geti verið ánægður :)

3.7.09

Tónlikar gærkvöldsins

Í gærkvöldi fóru fram fyrstu Gala tónleikarnir af fjórum og verður ekki hægt að segja annað en að vel hafi gengið og ég sé bara nokkuð sáttur með mína framistöðu. Sá sem átti að syngja fyrstur á dagskránni veiktist þannig að ég þurfti að opna bæði fyrri og seinni hálfleik, sem er svosem allt í lagi og bara skemmtilegra, mér finnst alltaf gaman að vera fyrstur.

Þarna var mættur sjálfur fjármálaráðherra þýskalands(Peer Steinbrück) og því fylgdi náttúrulega talsverð öryggisgæsla, sem var gaman að sjá og upplifa :)

Í dag er svo slökun fram til kl 18 en þá hefst undirbúningur fyrir tónleika númer 2 sem eru kl 20:00. Í gær var uppselt og mér skilst að það sé uppselt líka í kvöld. Það er einstaklega heitt í veðri og því ótrúlega skemmtileg stemmning að hafa þetta utandyra. Það stefnir í annan eins dag hérna í dag. Í dag verður allt heila klabbið tekið upp í hljóð og mynd, þannig að vonandi fær maður smá minjagrip um ævintýrið mikla. Ég birtu það að sjálfsögðu á þessari síðu sé það birtingarhæft.

Annars er ég bara nokkuð kátur og glaður með þetta alltsaman og mun að sjálfsögðu gera mitt allra besta í kvöld eins og önnur kvöld.

Ég fékk þær fréttir að Júlía mín væru byrjuð að klappa saman höndunum, og í tilefni þess fékk ég senda þessa mynd þar sem hún er að klappa fyrir pabba sínum eftir vel heppnað kvöld :)

1.7.09

Gala tónleikar, gott veður og sunnlendingur vikunnar.

Hér hefur nú ekki blásið köldum vindum síðustu daga, heldur þvert á móti hefur verið óheyrilega rakt og heitt. Sem er ekki endilega svo slæmt, miðað við kuldann.

En allavega, í fyrradag fórum við í tveggja og hálfs tíma bátsferð um vatnið hérna í Rheinsberg og það þarf varla að taka það fram hversu flott það er að vera umkringdur skógum og vatnasvæði.
Það hefur nú vissulega þá ókosti að því fylgir mikið af flugum og þá sérstaklega moskító! En þetta var mjög fín og róleg ferð, og gott að breyta aðeins til. Herbergisfélagi minn hérna er ísraelskur tenór sem er í stærri kantinum, en hann er ótrúlega fínn gaur og okkur kemur vel saman, sem er kostur þegar maður þarf að deila herbergi með viðkomandi í rúma viku.

Galatónleikaröð hefst á morgun, í dag er semsagt alger hvíld. Í gær var keyrt í tæpa 3 tíma til að fara á æfingu með sinfóníuhljómsveitinni í Frankfurt (an der Oder) við sungum svo í um 10 mín á mann og svo var keyrt til baka, þetta var semsagt mikil ferð í talsverðum hita í illa loftkældum bíl. En þetta var mjög gaman þrátt fyrir allt sem á undan hefur gengið. Á morgun er semsagt Genaral um miðjan dag og svo tónleikarnir sjálfir um kvöldið. Við fengum þær fréttir að það væri nánast uppselt á alla tónleikana og það þýðir að við syngjum fyrir um 750 manns á hverju kvöldi, sem er ótrúlega gaman, það sem gerir þetta allt erfitt er að við erum utandyra og það er virkilega erfitt
að halda aftur af röddinni, sem getur þýtt að maður ofreyni sig og verði raddlaus daginn eftir, EN maður á nú að geta kraflað sig fram úr þessu.

Ýmislegt annað er svo í gangi sem ég kann ekki við að jinxa fyrr en öruggt er orðið, en það verður sko alveg nóg að gera næstu daga og mánuði gangi allt eftir.

Ég svaraði svo spurningum Sunnlenska og það ætti að detta inn í næsta blaði sem "Sunnlendingur vikunnar" sjáum hvort það skili sér :)

Júlía litla er farin að hlaupa á ofsahraða í göngugrindinni sem hún er með í láni, auk þess að fara á hestbak og tæta í skápunum hennar ömmu í Skagafirði. Það er því margt sem maður hefur að hlakka til þegar maður hittir hana aftur. Fékk nokkrar myndir sendar úr Skagafirðinum af þeirri litlu og set hérna tvær góðar.